Vel á annað hundrað börn eru í fóstri á heimilum sem ekki hafa tilskilin leyfi. Forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) segir hægt að bæta þjónustu við börnin til muna.
Tæpur helmingur fósturheimila hefur ekki til þess tilskilin leyfi frá GEV. Við úttekt stofnunarinnar kom í ljós að samræmt verklag skorti við eftirlit og samtöl við fósturbörnin.
Eftir Bakkakotsmálið réðst GEV í úttekt á heimilum þar sem barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna hafa komið börnum í fóstur. Þar reyndust 436 börn vera í fóstri á 290 fósturheimilum. Tæpur helmingur heimilanna hafði ekki tilskilið fósturleyfi.
Þá eru 164 börn í fóstri á heimilum sem ekki hafa tilskilið fósturleyfi GEV, eða 38% barna í fóstri.
Veittu frest eftir breytingu á fósturforeldraleyfi
„Það sem breyttist árið 2022 var að fósturforeldraleyfi urðu tímabundin til fimm ára. Þess vegna þurftu fósturforeldrar sem voru með börn í fóstri hjá sér að endurnýja leyfin og við veittum frest til þess út árið 2024,“ segir Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
Stofnunin heldur ekki skrá yfir þau heimili þar sem börn eru í fóstri. Það var á ábyrgð barnaverndarþjónustu að upplýsa fósturforeldra um að endurnýja þyrfti leyfin. Það skýrir þó ekki öll tilvik leyfislausra fósturheimila.
„Í einhverjum tilfellum virðist vera sem sveitarfélögin eða barnaverndarþjónusturnar visti börn í fóstri hjá fjölskyldum sem eru ekki komnar með leyfin,“ segir Herdís.
Eftirliti ábótavant
Úttektin gaf líka til kynna að eftirliti væri ábótavant. Heimsóknir eiga að fara fram að minnsta kosti einu sinni á ári en aðeins helmingur barnaverndarþjónustna taldi sig uppfylla þær lágmarkskröfur.
„Börnin sum hver töluðu um það að þau upplifðu það að þau vissu ekki að þau ættu rétt á þessum eftirlitsheimsóknum,“ bætti Herdís við.
Önnur treystu sér ekki til að tala vegna þess að þau treystu ekki starfsmanninum sem kom. „Mörg hver upplifðu, með réttu eða röngu, að barnaverndarþjónustan væri frekar að draga taum fósturforeldranna,“ segir Herdís.
Herdís segir barnaverndarþjónustur fúsar til að gera úrbætur, svo sem að efla mönnun og bæta skráningu. Þá sýni úttektin einnig að skortur sé á samræmdu verklagi.
„Þegar þú ert að spyrja barn í fóstri út í aðbúnað og líðan þess, hvernig aðferðum á að beita, ef þú ert með gott verklag og leiðbeiningar þar um, þá er hægt að bæta þjónustuna mikið við börnin.“