Um 60.000 lítrum af svartolíu var dælt úr flaki finnsks herskips í Eystrasalti nýverið. Herskipið Ilmarinen sökk við strendur sænsku eyjarinnar Utö í sænska skerjagarðinum í september 1941 þegar það sigldi á tundurdufl. Skipið hefur legið í votri gröf síðan.
Finnska ríkisútvarpið segir að talið sé að um 100.000 lítrar af svartolíu hafi verið um borð í skipinu þegar það sökk, sem skapaði mikla hættu á umhverfisslysi.
Finnska umhverfisstofnunin sagði að fyrir aðgerðina hefði olíuleki úr skipinu verið talinn vera um 1-2 olíudropar á mínútu sem láku í gegnum tærð samskeyti á skipsflakinu.
Það tók finnsku umhverfisstofnunina og finnska sjóherinn tíu daga í júlí að ná olíunni úr skipinu. Kafarar fóru að flakinu og dældu olíu beint úr olíutönkum skipflaksins í gegnum holur sem voru boraðar á það.
Verkið var vandasamt því flakið liggur upp á rönd á 60-80 metra dýpi sem krefst strangra öryggisráðstafana bæði fyrir kafara og aðra sem koma að aðgerðum.
Ráðherra loftslags og umhverfis, Sari Multala, sagði að aðgerðirnar hefðu dregið verulega úr líkum á umhverfisslysi og sagði mikilvægt að ljúka verkefninu.
Talið er að um 40.000 lítrar séu enn um borð í skipinu en aðgerðum verður fram haldið á næsta ári.