Söng- og leikkonan Jennifer Lopez er í hörkuformi. Hún birti mynd af sér á samfélagsmiðlum á dögunum þar sem hún naut lífsins við sundlaugarbakka í hvítu, agnarsmáu bikiníi. Myndirnar hafa vakið mikla athygli á meðal aðdáenda hennar.
Lopez deildi nokkrum myndum á Instagram en þar var hún umkringd fjölskyldu og vinum. Hún sagðist þakklát fyrir fólkið sitt. Lopez hefur að undanförnu talað opinskátt um lífið eftir skilnaðinn við Ben Affleck. Í nýlegu viðtali sagðist hún vera komin á sitt hamingjutímabil.
Lopez hefur í nægu að snúast þessa dagana við kynningu nýjustu Netflix-kvikmyndarinnar sem hún leikur eitt aðalhlutverka í, Office Romance, ásamt Brett Goldstein.
Lopez og Affleck gengu í hjónaband í júlí árið 2022 en hún sótti um skilnað í ágúst 2024. Samkvæmt erlendum miðlum virðast samskipti þeirra þó vera á góðum nótum.