Minnst 35 flutningaskip fóru um Hormússund í gær, mánudag. Það er mesti fjöldi skipa sem farið hefur þar um síðan stríð Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófst.
Fjöldinn er tæplega þriðjungur venjulegrar skipaumferðar um sundið, en að jafnaði fara þar um 120 flutningaskip á dag.