25 stiga hiti mældist á Seyðisfirði í nótt og víða fór hitinn yfir 20 stigin á mælistöðvum Veðurstofu Íslands á Austurlandi í nótt.
Til að mynda fór hitinn í 24 gráður á Skjaldþingsstöðum á Vopnafirði og 23,6 stiga hiti mældist í Neskaupstað.
Margir fylgjast spenntir með því hvort hitametið kunni að falla í dag.
Metið er 30,5 stig sem mældist á Teigarhorni árið 1939. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Bliku, sagði í gær að hann útilokaði ekki að metið yrði slegið á Austurlandi í dag.
