Alls sækja 24 um stöðu bæjarstjóra í Suðurnesjabæ, en umsóknarfrestur um starfið er nú liðinn. Víkurfréttir greina frá þessu.
Upphaflega bárust 26 umsóknir um starfið en tveir umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka. Í hópi þeirra sem eftir standa eru meðal annars fyrrverandi sveitarstjórar, stjórnmálamenn, lögfræðingar, ráðgjafar og stjórnendur.
Meðal umsækjenda eru Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður, Ólafur Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóri, Pétur G. Markan, fyrrverandi bæjarstjóri, og Súsanna Björg Fróðadóttir lögmaður.
Umsækjendurnir eru:
- Agnar Júlíusson – forstöðumaður
- Alexandra Jóhannesdóttir – fyrrverandi sveitar- og hafnarstjóri
- Arna Hrönn Aradóttir – verkefnastjóri og ráðgjafi
- Aron Heiðar Steinsson – deildarstjóri
- Ásgeir Sveinsson – verkefnastjóri
- Ásmundur Friðriksson – fyrrverandi alþingismaður
- Birgir Albertsson Sanders – blikksmiður
- Einar Kristján Jónsson – fyrrverandi sveitarstjóri
- Gauti Magnússon – viðskiptastjóri
- Gísli Kr. Björnsson – lögmaður
- Gísli Rafn Ólafsson – fyrrverandi framkvæmdastjóri
- Hannes Lúðvíksson – ritari
- Hilmar Vilberg Gylfason – lögfræðingur
- Jóhann Friðrik Friðriksson – ráðgjafi
- Jón Ingi Hákonarson – ráðgjafi
- Kristinn Óskarsson – stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
- Maríanna Hugrún Helgadóttir – fyrrverandi framkvæmdastjóri
- Ólafur Þór Ólafsson – fyrrverandi sveitarstjóri
- Pétur G. Markan – fyrrverandi bæjarstjóri
- Sigurður Jóhannesson – sérfræðingur
- Snorri Leo Gabríelsson – þjónn
- Súsanna Björg Fróðadóttir – lögmaður
- Syed Anisuddin – öryggisvörður
- Þorsteinn Þorsteinsson – ritstjóri