Fulltrúar 22 ríkja krefjast þess að írönsk stjórnvöld hætti umsvifalaust atlögum að fólki á „okkar landi“, eins og það er orðað í sameiginlegri yfirlýsingu Bandaríkjanna, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands og fleiri Evrópuríkja auk Ástralíu.
Öryggisþjónustur Írans eru sérstaklega fordæmdar fyrir að nýta sér þjónustu alþjóðlegra og staðbundinna glæpagengja til að grafa undan alþjóðlegu öryggi og fullveldi ríkja. „Íran ber umsvifalaust að hætta tilraunum til manndrápa og mannrána, ofsóknum og hótunum og öðrum atlögum að fólki,“ segir í yfirlýsingunni.
Byltingarvörðurinn og Quds-sveitir hans, sem starfa víða um heim, hafi skipulagt hættulegar aðgerðir gegn írönsku andófsfólki, blaðamönnum, samfélagi gyðinga og hagsmunum Ísraels. „Við stöndum sameinuð og staðföst í vörnum lands og þjóðar,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Klerkastjórnin er sögð standa að baki atlögum að samfélagi gyðinga víða um Evrópu og blaðamönnum frá Íran og Bandaríkjunum sem hafa verið kennd Harakat Ashab al-Yamin al-Islamiya, lítt þekktum öfgahópi með tengsl við Íran.
Þau hafa lýst ábyrgð á atlögum að samfélögum gyðinga í Bretlandi, Belgíu og Hollandi, meðal annars hnífaárás á tvo menn í norðurhluta Lundúna, íkveikjuárásir á bænahús og aðra staði gyðinga.