Akureyrarvaka er um helgina. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá. Tónleikaþyrstir gestir Akureyrarvöku geta farið á tónleika samfleytt frá klukkan fimm á laugardag til miðnættis, víðs vegar um bæinn.
Um 100 viðburðir, af öllum stærðum og gerðum, fara fram um helgina. Froðudanspartý verður í Sundlauginni á Akureyri og þeir sem vilja meiri slökun geta skellt sér í lystigarðinn á Rökkurró.
Þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafninu, göngugötunni verður breytt í tónleikastað og Rúnar Eff tónlistarmaður býður bæjarbúum í garðpartý.
„Ég bjóst ekki alveg við svona mörgum“
Um 1000 manns hafa meldað sig á garðatónleika Rúnars Eff sem fram fara á laugardaginn. Þeir hefjast klukkan fimm og eftir það getur fólk fylkst niður í göngugötuna á Akureyri þar sem Karl Örvarsson verður með hópsöng, Ágúst Brynjarsson leikur fyrir dansi og tónlistarkonan Bríet spilar svo fyrir gesti og gangandi í Gilinu þegar líður á kvöldið.
„Þetta fór kannski aðeins úr böndnunm, ég bjóst ekki alveg við svona mörgum. Sem betur verður hljómsveitin bara á pallinum og þetta er stórt horn. Við ætlum að loka Hrafnagilsstræti og Mýravegi. Garðurinn verður væntanlega bara fullur af fólki og gatan líka,“ sagði Rúnar Eff Rúnarsson þegar að fréttastofa leit við hjá honum í hádeginu.
Vinna við undirbúning tónleikanna var í fullum gangi og meðal annars var verið að setja upp svið á sólpallinum. Gestir geta svo spókað sig um í garðinum eða götunum tveimur sem umlykja húsið en þeim verður lokað.
„Með mér verða Malen Ásgeirsdóttir og Magni Ásgeirsson, ásamt hljómsveit. Það kostar ekkert inn og það verða grillaðar pylsur og coke á meðan byrgðir endast,“ bætti Rúnar við.