13 ára drengur lést eftir að hafa tekið þátt í hættulegu samfélagsmiðlaæði

Fjölskylda hins 13 ára Nicky Lowther, sem lést eftir að hafa andað að sé gufum úr úðabrúsa (e. chroming eða hugging), varar nú aðra foreldra við þessu lífshættulega samfélagsmiðlaæði. Nicky fannst meðvitundarlaus á heimili sínu í Kent á Englandi og lést skömmu síðar á sjúkrahúsi. Á herbergi hans fundust tólf úðabrúsar.
Umrætt trend felst í því að anda að sér gufum úr úðabrúsum, eins og svitalyktareyði eða hárspreyi, til að ná fram vímu. Unglingar taka iðulega upp myndbönd af athæfinu og deila þeim á samfélagsmiðlum. Fjölskylda Nicky hafði aldrei heyrt um þetta æði áður en harmleikurinn átti sér stað.
Skilaboð fjölskyldunnar: Ræðið við börnin ykkar
Toni Lowther, frænka Nicky, hvetur foreldra til að eiga opin og heiðarleg samtöl við börn sín um stórhættuna sem fylgir þessu.
„Það er engin örugg leið til að anda að sér úðabrúsum. Þetta er lífshættulegt,“ segir hún. Hún bætir við að hún hafi verið í áfalli eftir að hún komst að því að það eru leiðbeiningamyndbönd um þetta athæfi í dreifingu á netinu.
Toni lýsir Nicky sem kátum, fyndnum og umhyggjusömum dreng sem passaði alltaf upp á aðra í skólanum. Til að heiðra minningu hans og koma í veg fyrir frekari dauðsföll hefur hún sett af stað undirskriftasöfnun á netinu til að banna sölu á úðabrúsum til ungs fólks.
„Dauði Nicky var algjörlega óþarfi, sem er erfiðasti hlutinn. Hann fékk aldrei að útskrifast úr skóla, taka bílpróf eða stofna fjölskyldu. Nicky varð ekki bjargað, en vonandi getur saga hans bjargað öðrum börnum,“ segir hún að lokum.