Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að grunur sé um að hantaveiran sem greindist í vikunni um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius við Grænhöfðaeyjar smitist manna á milli. Tvö tilfelli hantaveiru hafa verið staðfest meðal farþega skipsins og fimm til viðbótar eru til rannsóknar. Þrír hafa látið lífið af völdum sýkingar.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að unnið sé að því að hafa uppi á farþegum í flugi milli eyjunnar Sankti Helenu í Suður-Atlantshafi og Jóhannesarborgar í Suður-Afríku, tuttugasta og fimmta apríl. Einn farþega skipsins var í fluginu og lést daginn eftir.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir einn þeirra smituðu vera alvarlega veikan og þrír séu með vægari einkenni.
Oceanwide Expeditions sem rekur skipið segir að breskur karlmaður sé á gjörgæslu á sjúkrahúsi í Jóhannesarborg og tveir úr áhöfn skipsins, Breti og Hollendingur, þurfi brýna læknisaðstoð. Fjórir af þeim sem taldir eru sýktir séu enn um borð í skipinu, þar á meðal Þjóðverji sem lést á laugardag.
Fyrst fór að bera á veikindum meðal farþega skipsins á milli sjötta og 28. apríl. Stofnunin segir að einkennin séu hiti, magakveisa, öndunarbilun, hröð framganga lungnabólgu og hröðum framgangi lungnabólgu og lost. Frekari rannsóknir standi yfir.