Aðgerðarsinninn Paul Watson líkir aðgerðum Landhelgisgæslunnar við milliríkjadeilu. Það gerir hann í myndbandi sem hann deilir á Facebook.
Þar lýsir Watson aðgerðum gæslunnar. Hann segir að til viðbótar við þyrlu hafi þrír slöngubátar flutt sérsveitarmenn um borð í skipið eftir nokkurra klukkustunda eftirför. Frá því að gæslan tók yfir stjórn skipsins hafi hann ekki heyrt frá áhöfninni.
„Svo hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að við erum stödd í alþjóðlegu deilumáli eftir friðsamleg afskipti af ólöglegum hvalveiðum sem eru siðferðislega rangar og hafa skaðleg áhrif á vistkerfið,“ segir Watson. „Þetta gefur okkur gott tækifæri til að nýta handtökurnar, mögulegar fangelsanir og réttarhöld til að beina kastljósinu að ólöglegum hvalveiðum Kristjáns Loftssonar.“
Fréttin verður uppfærð