Dagblaðið Washington Post hlaut Pulitzer verðlaunin fyrir ítarlega umfjöllun sína um þær umfangsmiklu breytingar sem Trump-stjórnin hefur gert á bandarískum ríkisstofnunum. Umfjöllun dagblaðsins sneri að meðal annars að niðurskurði innan stofnanna og þeim almennu breytingum sem voru gerðar á þeim starfsemi þeirra.
Verðlaunin eru veitt í flokki almannaþjónustu eða public service. Bandaríkjastjórn og Donald Trump, Bandaríkjaforseti, voru óneitanlega rauði þráðurinn í verðlaunaafhendingum kvöldsins.
New York Times hlaut þrenn verðlaun í kvöld. Blaðið hlaut meðal annars verðlaun í flokki rannsóknarblaðamennsku fyrir umfjöllun sína um hvernig forsetinn braut gegn reglum um hagsmunaárekstra og nýtti stöðu sína til að auðga fjölskyldu sína og bandamenn.
Fréttastofan Reuters hlaut sömuleiðis tvenn verðlaun. Önnur þeirra voru veitt fyrir umfjöllun fréttastofunnar um Donald Trump og misnotkun hans á forsetaembættinu. Umfjöllunin sneri að því hvernig forsetinn nýtti vald embættisins og áhrif stuðningsmanna sinna til þess að auka framkvæmdarvald og refsa andstæðingum.