Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í tengslum við hið árlega „Vopnaskak“ dagana 9. til 12. júlí, í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.Sýningin skartaði ljósmyndum frá Vopnafirði frá tímabilinu 1970 til 1985. Má svo sannarlega segja að Vopnfirðingar hafi gengið þar inn í fortíð sína og gamlar minningar urðu ljóslifandi.
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu