Icelandair þarf að gera breytingar á flugáætlun til Akureyrar og Egilsstaða næstu vikur. Þetta er vegna nauðsynlegs viðhalds á einni af DHC 8 Q400 flugvélum félagsins.
„Til að lágmarka áhrif breytinganna hefur Icelandair bætt við 15 aukaferðum (30 flugleggjum) til Akureyrar og Egilsstaða frá og með morgundeginum, fimmtudeginum 10. september, og næstu tvær vikurnar,“ segir í tilkynningu.
Sætaframboð verður tímabundið minna en venjulega. Farþegar sem ætla að ferðast innanlands á tímabilinu eru hvattir til að bóka flug með fyrirvara eins og kostur er.