Það væri varasamt að ganga út frá því að Úkraína sé að vinna stríðið. Fjórði stríðsveturinn er að ganga í garð og margt bendir til þess að hann gæti orðið sá þyngsti til þessa fyrir óbreytta borgara. Samkvæmt skýrslu mannréttindaskrifstofu SÞ frá því í sumar hefur mannfall meðal almennings aukist samhliða kerfisbundnum árásum á orkumannvirki. Haldi sú þróun áfram gætu milljónir manna hugsanlega staðið frammi fyrir vetri án hita, rafmagns og rennandi vatns í frosthörkum. Þetta er ekki spádómur.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Veturinn gæti orðið hræðilegur fyrir mannkynið