Fyrirtæki sem annast rekstur gufubaðs í litlum skúr á Ægisíðu, í vesturbæ Reykjavíkur, sem áður var notaður vegna grásleppuveiða hefur kært ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að reksturinn sé starfsleyfisskyldur. Eftirlitið segist hins vegar aðeins hafa bent fyrirtækinu á að það þurfi starfsleyfi vegna rekstursins en engin formleg ákvörðun hafi verið tekin í málinu. Reksturinn hefur verið umdeildur en borgarlögmaður sagði í minnisblaði, sem lagt var fyrir borgarráð í sumar, að forsvarskona fyrirtækisins hefði sölsað undir sig skúrinn sem væri eign borgarinnar.
Gusumeistarinn á Ægisíðu í stríði við heilbrigðiseftirlitið