Ólíkt hlutfall barna sem þreyta PISA-könnunina milli landa hefur verið nokkuð á milli tannanna á fólki. Tæplega 4 þúsund, eða 78,2% gjaldgengra nemenda, tóku prófið á Íslandi. Hlutfallið er hins vegar nokkuð lægra í öðrum löndum.
Helga Birgisdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir það af og frá að í útlöndum séu handvalin úrvalsbörn til að taka PISA-prófið.
Hún var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Tiltekinn fjöldi barna þarf að þreyta prófið til að það sé marktækt. Fátt fólk býr á Íslandi í samanburði við önnur lönd og þátttökuhlutfallið því hátt hér. „Við erum marktæk,“ segir Helga.
Hún útskýrir að nemendahópurinn erlendis sé valinn til að gefa sem réttasta mynd af honum í heild sinni í hverju landi. „Það eru sérstakar aðferðir við það.“
„Það er ekki þannig að það sé handvalinn hópur nemenda og þetta sé ekki marktækt af því að það séu miklu fleiri á Íslandi hlutfallslega sem taka prófið. Það er ekki svoleiðis.“