Krónan styrktist fyrri hluta árs þvert á það sem hefði mátt búast við vegna mikils viðskiptahalla við útlönd. Hluti ástæðunnar er sá að vöruinnflutningur var að stórum hluta fjármagnaður erlendis, svo sem mikil innkaup fyrir gagnaver.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagsjá Landsbankans í dag.
Þar er bent á verðþróun evrunnar samhliða því að krónan styrktist á fyrri hluta árs. Evran kostaði 147,50 krónur í ársbyrjun, 144,00 krónur í lok júní og er komin í 140,40 krónur.
Krónan hefur styrkst um 4,8 prósent frá áramótum. Höfundur Hagsjárinnar segir þetta óvenjulegt í ljósi mikils halla á utanríkisviðskiptum. Á þessu eru þó skýringar.
Fjárfestar leggja mikið kapp á uppbyggingu gagnavera þessi misserin. Á fyrri hluta árs voru fluttar inn skrifstofuvélar og tölvur fyrir 101 milljarð. Megnið fór í tölvur fyrir gagnaver. Til samanburðar var vöruskiptahallinn 177 milljarðar.
Þar sem kaupin á gagnaverstölvunum voru fjármögnuð í útlöndum hafa þau ekki áhrif á gjaldeyrisflæði. Því hafa þau ekki áhrif á gengið.