Bið eftir þjónustu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar lengist eftir að loka þurfti húsnæðinu við Dalshraun í Hafnarfirði vegna myglu. Leitað er að tímabundnu húsnæði til að brúa bilið og til stendur að endurskoða þjónustuna til að auka afköst og stytta biðlista.
Meðalbiðtími er rúmlega tvö ár, samkvæmt upplýsingum frá Umboðsmanni barna.
790 börn með alvarlegar þroskaskerðingar voru á biðlista eftir sumarið áður en húsnæðinu var lokað eftir að mygla fannst. Starfsfólk vinnur heima á meðan og stöðin tekur við um helmingi færri börnum en þegar hún starfar á fullum afköstum.
„Það var uppsafnað eftir sumarfríið því við lokuðum í júlí. Síðan höfum við farið í gegnum marga tugi tilvísana sem fara í bið,“ segir Solveig Sigurðardóttir, staðgengill forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar.
„Við reynum að vinna eins og við getum við þessar aðstæður – að hafa ekki húsnæði og allt starfsfólkið er í heimavinnu.“
Solveig er bjartsýn á að tímabundið húsnæði finnist fljótlega.
„Við höfum augastað á tímabundnu húsnæði og ráðuneytið sýnir sterkan vilja til að hjálpa okkur með langtímalausn.“
Ekki sé hægt að ljúka málum meðan þetta ástand varir. Þar að auki hafi tilvísunum fjölgað mikið síðustu ár án þess að starfsfólki hafi verið fjölgað eða aðstaða bætt í samræmi. Leita þurfi að langtímalausn.
„Það er aukin ásókn í þjónustuna og stöðin hefur ekki stækkað að sama marki. Þannig að stöðugildum hefur ekki fjölgað eins og fjöldi tilvísana hefur aukist.“
Skoða hvernig stytta megi biðlista
Solveig fundaði með stjórnvöldum í morgun vegna leitar að tímabundnu húsnæði og er vongóð um að það finnist fljótlega. Brátt verður skoðað hvernig hægt er að auka afköst og stytta biðlista.
„Það er kannski ekki beint draumastaða að fara aftur í gamla húsnæðið á Dalshrauni en mögulega verður það lendingin í einhvern tíma. En ráðuneytið sýndi mikinn vilja að skoða þessi mál með okkur af kannski meiri dýpt en hefur verið gert.“