Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?

Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?

Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?

Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?

Finnsk­ur geð­lækn­ir syrg­ir þátt sinn í þró­un sem leiddi til stór­auk­inn­ar notk­un­ar þung­lynd­is­lyfja. Á Ís­landi hef­ur hlut­fall þeirra sem fá slík lyf nær tvö­fald­ast frá 2007. Er kom­inn tími til að end­ur­skoða hvernig við nálg­umst mann­lega þján­ingu?

Íbyrjun september birtist óvenjulegt viðtal í finnska dagblaðinu Helsingin Sanomat. Þar lítur geðlæknirinn Eila Sailas yfir starfsævina og viðurkennir að hún sjái eftir því að hafa verið hluti af þróun sem hún tók á sínum tíma þátt í af fullri sannfæringu.

Nær allan sinn starfsferil hélt Sailas fyrirlestra fyrir lækna á fræðsluviðburðum sem fjármagnaðir voru af lyfjafyrirtækjum. Þar lagði hún meðal annars áherslu á mikilvægi þess að læknar lærðu að þekkja og meðhöndla þunglyndi. Þetta var á tíunda áratug síðustu aldar, á sama tíma og ný SSRI-þunglyndislyf komu á markað og lyfjafyrirtæki lögðu mikla áherslu á að auka vitund um þunglyndi. Sailas segir sjálf að hún hafi aðeins verið einn af mörgum boðberum þessa málstaðar.

Skilaboðin komust til skila. Í dag nota um 600 þúsund Finnar þunglyndislyf. Sailas segir að hún syrgi sinn þátt í þessari þróun. Hún hafi ekki staldrað við og spurt þeirrar grundvallarspurningar sem hún spyr nú: Hvað er þunglyndi – og hvað er það ekki?

Mér finnst merkilegt að heyra geðlækni á hennar aldri og með hennar starfsferil tala með þessum hætti. Ekki vegna þess að hún segist hafa öll svörin í dag, heldur vegna þess að hún er tilbúin að líta til baka og endurskoða það sem áður þótti rétt.

Þegar þjáning verður að sjúkdómi

Sailas segir að fólk sem leiti til læknis vegna þunglyndis og kvíða þurfi oft annars konar aðstoð við vandamálum sínum. Þar nefnir hún áföll lífsins, fjárhagserfiðleika og sambandsvanda. Samt sé algengt að niðurstaðan verði greining og lyf. Þarna finnst mér við komast að einhverju sem við þurfum að þora að ræða: Höfum við sjúkdómsvætt mannlega tilveru?

Sorg, ótti, einmanaleiki, kvíði, reiði, vanmáttur og örvænting eru hluti af því að vera manneskja. Þau geta orðið svo yfirþyrmandi að við þurfum hjálp. En það þýðir ekki sjálfkrafa að orsök þeirra sé sjúkdómur innra með einstaklingnum. Stundum er manneskja að bregðast við því sem hefur komið fyrir hana. Stundum er hún að bregðast við því sem er enn að gerast í lífi hennar. Og kannski er spurningin „hvað er að þér?“ einfaldlega ekki rétta spurningin.

Sagan um efnaójafnvægið

Í áratugi hefur almenningi verið boðin einföld og sannfærandi skýring á þunglyndi: að það tengist efnaójafnvægi í heilanum og sérstaklega skorti á serótóníni. Sú hugmynd varð gríðarlega útbreidd. Vandinn er að vísindin staðfestu aldrei þessa einföldu sögu. Í stórri yfirlitsrannsókn sem birtist í Molecular Psychiatry voru niðurstöður helstu rannsóknarsviða á tengslum serótóníns og þunglyndis teknar saman. Niðurstaða höfunda var að rannsóknirnar veittu ekki sannfærandi stuðning við þá kenningu að þunglyndi stafaði af minnkuðu magni eða minni virkni serótóníns. Höfundarnir benda jafnframt á að hugmyndin um „chemical imbalance“ sé enn útbreidd meðal almennings.

Það er mikilvægt að gera skýran greinarmun hér. Þetta sannar ekki að þunglyndislyf geti ekki hjálpað. Rannsóknin fjallaði um kenninguna um orsök þunglyndis, ekki um hvort þunglyndislyf geti haft áhrif eða gagnast fólki. Þessi aðgreining hefur einmitt verið áréttuð í fræðilegri umræðu um rannsóknina. En ef fólki var sagt að lyfið væri að leiðrétta undirliggjandi efnaójafnvægi þá skiptir máli hvort sú fullyrðing var studd af vísindunum því hér kemur annað hugtak til sögunnar: upplýst samþykki. Rétturinn til að vita hvað við vitum – og hvað við vitum ekki.

„Hvernig á ég að heila rót vandans ef ég er alltaf með dregið fyrir gluggann?“

Ég er ekki að skrifa þetta til að segja fólki að hætta að taka geðlyf. Ég er heldur ekki að halda því fram að þau geti ekki hjálpað. Margir upplifa að þau hafi hjálpað þeim og sú reynsla á rétt á sér. Ég er að tala um rétt okkar til upplýsinga. Ef einstaklingur ætlar að taka lyf sem hafa áhrif á miðtaugakerfið á hann rétt á að vita það sem er vitað, hver mögulegur ávinningur er, hvaða aukaverkanir geta fylgt þeim og hvað við vitum – og vitum ekki – um áhrif langvarandi notkunar og það að hætta töku þeirra. Og hann á rétt á því að óvissa sé kölluð óvissa. Við getum ekki tekið raunverulega upplýsta ákvörðun nema við fáum upplýsingarnar sem þarf til þess.

Ég á líka þessa sögu

Ég er notandi og starfsmaður í Hugarafli, samfélagi fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og er að vinna í sínum bata. Ég kom þar inn fyrir nær sex árum síðan í mjög slæmu andlegu ástandi og mikilli þjáningu. Ég á mína eigin sögu af áföllum og erfiðleikum við að fóta mig í mannlegri tilveru. Á lífsleiðinni hef ég tekið þrjár tegundir SSRI- og SNRI-geðlyfja.

Ég man sérstaklega eftir því þegar ég hafði sjálf hætt á síðasta lyfinu mínu. Ég brotnaði niður inni hjá lækni. Ég vildi ekki prófa enn eitt lyfið. Ég vildi leita annarra leiða. Læknirinn vildi hins vegar ólmur skrifa upp á annað SSRI-lyf. Ég man hvað ég sagði: „Hvernig á ég að heila rót vandans ef ég er alltaf með dregið fyrir gluggann? Hvernig á ég að sjá orsökina ef ég breiði alltaf yfir hana?“

Þetta var mín upplifun. Lyf geta verið öðrum allt önnur reynsla og ég ætla ekki að skilgreina hana fyrir þá. En ég vissi að ég vildi ekki lengur einungis reyna að draga úr því sem ég fann. Ég þurfti að skilja það. Ég þurfti að líta á það sem hafði gerst í lífi mínu. Ég þurfti að skilja sjálfa mig og viðbrögð mín. Ég þurfti að finna leið til að lifa með tilfinningunum mínum í stað þess að óttast þær. Það hefur verið hluti af minni batavegferð.

Ein af hverjum sex manneskjum

Og þess vegna getum við ekki litið á umræðuna í Finnlandi eins og hún komi okkur ekki við. Samkvæmt nýjustu tölum Embættis landlæknis fengu 163,8 af hverjum 1.000 Íslendingum þunglyndislyf afgreidd árið 2025. Það jafngildir um 16,4 prósentum þjóðarinnar – eða um það bil einum af hverjum sex. Meðal kvenna var hlutfallið 213,9 af hverjum 1.000, eða rúmlega ein af hverjum fimm.

Árið 2007 var samsvarandi tala fyrir þjóðina 85,04 af hverjum 1.000. Hlutfallið hefur því nær tvöfaldast á átján árum.

Notkun þunglyndislyfja á Íslandi árið 2025 – heimild: Embætti Landlæknis

Þessar tölur segja okkur ekki hvers vegna hver einstaklingur tekur lyfin sín. Þær segja heldur ekkert um hvort lyfin hafi hjálpað viðkomandi. En umfangið eitt og sér ætti að gefa okkur tilefni til að spyrja spurninga. Hvað erum við að meðhöndla? Hvað liggur að baki vanlíðan fólks? Hvaða úrræði bjóðum við áður en lyf eru gefin, samhliða þeim eða í stað þeirra? Og höfum við gert læknisfræðilega nálgun að sjálfgefnu svari við vandamálum sem eiga sér stundum rætur annars staðar?

Önnur leið til að horfa á bata

Í Hugarafli vinnum við út frá bata og valdeflingu í samfélagi jafningja. Þar er manneskjan ekki greiningin sín og bati er ekki skilgreindur út frá því hvort einkenni hverfa. Við lítum á einstaklinginn sem sérfræðing í eigin lífi. Við horfum til styrkleika, vonar, merkingar, tengsla og valdeflingar. Við spyrjum hvað manneskjan sjálf vill, hvað skiptir hana máli og hvað hún þarf til að geta byggt upp líf sem henni finnst þess virði að lifa.

Þetta þýðir ekki að hafna læknisfræði. Það þýðir að læknisfræðin fær ekki ein að skilgreina manneskjuna eða bata hennar. Greining getur gagnast sumum. Lyf geta gagnast sumum. Meðferð getur gagnast sumum. Jafningjastuðningur, samfélag, tilgangur og mannleg tengsl geta skipt sköpum. En manneskjan sjálf verður að vera í miðjunni.

Kannski þurfum við oftar að færa okkur frá því að spyrja: „Hvað er að þér?“ og þora að spyrja: „Hvað hefur komið fyrir þig?“ Og svo hlusta á svarið.

Að geta endurskoðað eigin sögu

Á minni eigin batavegferð hef ég þurft að líta yfir söguna mína og endurskoða hana. Ég hef þurft að horfast í augu við eigin mistök, taka ábyrgð á minni vegferð, fyrirgefa sjálfri mér og læra að gera betur. Fyrir mér er það hluti af því að þroskast. Mér finnst að við sem samfélag þurfum að geta gert það sama. Kerfin okkar þurfa líka að geta það. Kerfi eru, þegar allt kemur til alls, búin til af manneskjum og manneskjur gera mistök. Við tökum ákvarðanir út frá þeirri þekkingu, þeim hugmyndum og þeim sannfæringum sem við höfum á hverjum tíma. Stundum reynast þær rangar. Stundum sjáum við síðar afleiðingar sem við sáum ekki fyrir.

Vandinn er ekki að hafa einhvern tíma haft rangt fyrir sér. Vandinn verður til þegar ný þekking eða reynsla gefur okkur tilefni til að endurskoða það sem við höfum gert en við neitum að horfast í augu við það. Þess vegna finnst mér framganga Eilu Sailas merkileg. Hún getur ekki breytt því sem hún tók þátt í en hún getur horft til baka, viðurkennt sinn þátt í þróuninni og sagt opinberlega að hún sjái hlutina öðruvísi í dag. Ég vildi óska þess að fleiri innan geðheilbrigðiskerfisins hefðu hugrekki til þess sama. Ekki til þess að við getum fundið sökudólga heldur vegna þess að þannig verða breytingar til.

Við getum ekki breytt því sem við sjáum ekki. En þegar við sjáum það opnast tækifæri til að umbreyta því sem er.


Höfundur er stjórnarmeðlimur, starfsmaður og notandi í Hugarafli.
#fyrir #hvað #höfðum #rangt #við


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27239/hvad-ef-vid-hofdum-rangt-fyrir-okkur/

📰 Aðrar fréttir

Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 0
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 0
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 0
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 0
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 1
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 0
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 0
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 2
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 1
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 2
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 2
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 1
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 2
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 2
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 3
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 1
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 2
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 3
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 3
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 2
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 3
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 3
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 3
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
📅 25.10.2026 👁️ 2
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
📅 25.10.2026 👁️ 3
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
Serbia is heading to the polls as a student movement attempts to oust longtime populist leader Aleksandar Vučić.
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 5
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um v...
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
📅 25.10.2026 👁️ 4
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...