Verkalýðshreyfingin hefur ekki fengið næg svör frá stjórnvöldum til að ákveða hvort tilefni sé til að rjúfa kjarasamninga, segir forseti Alþýðusambands Íslands. Eiginlegar viðræður séu ekki hafnar.
Forsendur kjarasamninga brustu þegar verðbólga mældist yfir viðmiði kjarasamninga í ágúst og þá getur verkalýðshreyfingin rift samningum fyrir 8. október.
„Það eru svona þreifingar í gangi en það verður að vera komin alvara í þetta í næstu viku ef þetta á að nást saman,“ segir Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
Markmiðið að ná niður verðbólgu
Margir þurfi að koma að samningaborðinu og ná saman til að kjarasamningar haldi.
„Þar eru meðal annars sveitarfélög sem hafa verið að hækka gjaldskrár sínar allt of mikið og það eru fyrirtæki sem þurfa að undirgangast það aftur að þau taki undir með okkur um það að reyna að ná niður verðbólgu. Það er okkar markmið í þessari endurskoðun, eins og þegar við gerðum kjarasamningana 2024.“
Fjármálaráðherra sagði í vikunni að honum þætti furðulegt fyrirkomulag að ríkið niðurgreiddi kjarasamninga á almennum markaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra sagði stjórnvöld hafa ýmsar leiðir til að verja kjarasamninga eftir að forsendur brustu. Það myndi þó aldrei vera á kostnað hallalausra fjárlaga.
Forsætisráðherra ræddi um þríhliða samtal ríkis, vinnumarkaðarins og verkalýðshreyfingarinnar á blaðamannafundi í gær. Finnbjörn kveðst hóflega bjartsýnn á viðbrögð stjórnvalda.
„Það hefur bara sáralítið sem ekkert gerst í þessum viðræðum, því þetta hafa ekki verið neinar formlegar viðræður, við höfum bara verið í spjalli við ríkisstjórnina. En núna stendur til að fara í alvöru viðræður um hvað ríkisstjórnin er tilbúin til að gera til að liðka til að samningar haldi.“
Engin formleg svör frá stjórnvöldum
Finnbjörn kveðst hóflega bjartsýnn á að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til að tryggja að kjarasamningar haldi.
„Við höfum ekki fengið nein formleg svör við neinum af okkar málaleitunum enn þá. Þangað til ég fæ einhver svör þá ætla ég að lifa í voninni um að við munum ná þessu saman. En þegar svörin berast þá annað hvort styrkist ég í því eða vonin dofnar.“