„Það eina sem við gefum upp er að það er búið að yfirheyra einstaklinga. Við erum ekkert að gefa frekar upp um það.“
Um er að ræða fjögur innbrot í þrjú dýrabú í sumar. Svínum Stjörnugríss var sleppt út í Saltvík í síðustu viku. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði svo þurfti að aflífa hana. Verksummerki voru með svipuðum hætti og síðast þegar brotist var inn hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt í maí síðastliðnum.
Þá skildu skemmdarvargarnir eftir svokallaða stefnuskrá á vettvangi. Í júní var brotist í Reykjabú og hænum sleppt. Samskonar yfirlýsing var skilin eftir á vettvangi. Í lok júlí var svo brotist inn í Dalsbú í Mosfellsdal og hundruðum minka sleppt út í náttúruna.
„Það er búið að yfirheyra aðila í tengslum við hluta af þessum málum,“ segir hún.
Hjördís segir lögreglu ekki geta gefið sér að málin tengist með einhverjum hætti.
„Þetta er allt rannsakað hvert í sínu lagi,“ segir Hjördís og að lögreglan geti ekki annað en unnið þannig.
„Þetta er á fullu í rannsókn og við getum lítið tjáð okkur um mál sem eru í rannsókn, eðli málsins samkvæmt.“