Norska ríkissjónvarpið baðst afsökunar á mistökum sem áttu sér stað við textun á ræðu biskupsins Olav Fykse Tveit við útför Haraldar Noregskonungs fyrr í dag.
Biskupinn sagði að hægt væri að sigrast á erfiðleikum og mótlæti með norsku orðunum: „Noget ondt kan rettes op igen, der findes nye, blanke ark.“
Textinn sem fylgdi með á skjánum hjá norska sjónvarpinu var hins vegar:
„Nord-Korea vondt kan rettast opp att, det finst nye, blanke ark.“
Biskupinn minntist hins vegar hvergi á Norður Kóreu í guðsþjónustunni og NRK báðust afsökunar á mistökunum.