Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

Bílaumboðið Hekla
Mynd: Hekla
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun barst tilkynning frá Heklu um innköllun á Skoda Fabia, Octavia, Superb og Kodiaq af árgerð 2017-2018.
Er um að ræða svokallaða Takata innköllun þar sem við árekstur getur loftpúði skotið út málmflísum sem valda lífshættulegum áverkum. Mun Hekla skoða loftpúða og skipta út þeim sem eru gallaðir.
Eru eigendur slíkra ökutækja beðnir um að hafa samband við Heklu og panta tíma ef innköllun hvílir á bílnum.