Formaður Leigjendasamtakanna fagnar fyrirhuguðu frumvarpi um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð.
Nái frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra fram að ganga verður ekki lengur heimilt að tengja leigusamninga við mánaðarlega vísitölu.
Yngvi Ómar Sigrúnarson segir málið forgangsmál hjá Leigjendasamtökunum.
„Því þetta tíðkast hvergi í heiminum, svo við vitum til, að það sé hægt að hækka leigu mánaðarlega með vísitölu – sem þýðir að þetta hækkar líka verðbólgu.“
Hann segir þetta fyrsta skrefið til að bæta réttarstöðu leigjenda á Íslandi og gera leigumarkaðinn réttlátari.
Yngvi Ómar bendir á að um 30% landsmanna séu leigjendur og því mikið undir. Breytingin gagnist þó einnig landsmönnum sem eru ekki á leigumarkaði.
Slær á verðbólguna
„Samkvæmt okkar útreikningum er þetta stór hluti af ársverðbólgu hvers árs, þessi verðtrygging á leigu.“
Yngvi vísar til síðustu verðbólgumælinga. Í þeim var aukning á verðbólgunni meðal annars rakin til reiknaðrar húsaleigu. „Þetta eru að miklu leyti þessar sjálfvirku vísitöluhækkanir,“ segir hann.
Í flestum löndum Evrópu má hækka leigu einu sinni á ári í tengslum við vísitölu, segir Yngvi. „En þú mátt ekki líka hækka hana í tengslum við markaðsverð eða eitthvað sem þér finnst þú eiga að fá fyrir íbúðina þína,“ segir hann.