Það er ekki alltaf augljóst hvar akgreinin heldur áfram í miðri beygju á stórum gatnamótum, fjölmiðlakonan Andrea Sigurðardóttir fékk heldur betur að finna fyrir því þegar það var flautað á hana á gatnamótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar í Reykjavík. Hún taldi sig hafa verið í rétti en til að fá úr því skorið leitaði hún á náðir dómstóls götunnar, nánar tiltekið netverja í hópnum Fávitar í umferðinni.
Andrea leitaði til dómstóls götunnar – „Hvor er fávitinn, ég eða hann?“