Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra fara fram á Alþingi í kvöld.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra gerir grein fyrir helstu stefnumálum ríkisstjórnarinnar. Samhliða því birtist þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Forystukonur ríkisstjórnarinnar héldu blaðamannafund í gær þar sem þær sögðu frá ýmsum frumvörpum sem eru væntanleg. Endanlegi listinn birtist þó ekki fyrr en í kvöld þegar þingmálaskráin lítur dagsins ljós.
Tólf aðrir þingmenn flytja ræður í kvöld, einn frá hverjum flokki og Guðmundur Ingi Kristinsson sem er utan flokka. Ræðumenn verða því 13 talsins.
Forsætisráðherra fær 12 mínútur til að flytja sína ræðu. Aðrir þingmenn frá sex mínútur hver. Undantekningin er Guðmundur Ingi sem fær fimm mínútur.
Umræðurnar verða sýndar í beinni útsendingu í Ríkisútvarpinu. Útsendingin hefst klukkan 19:40. Að umræðum loknum fær Magnús Geir Eyjólfsson þær Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri og í Vesturbyggð, og Eyrúnu Magnúsdóttur, ritstjóra Gímaldsins, til að greina efni umræðnanna og frammistöðu ræðumanna.
Á RÚV.is verður svo greint frá því sem fram kom í umræðunum að þeim loknum.