Trump lætur 9/11 snúast um sig
Í Hvíta húsinu var viðbragðsaðila sem létust í hryðjuverkaárásum á Bandaríkin árið 2001 minnst. Donald Trump lét viðburðinn og söguna snúast um sjálfan sig. „Aftur,“ segir AFP og bendir á að frásögn forsetans hafi tekið breytingum í gegnum árin og verið dregin í efa af björgunaraðilum á vettvangi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir tvo slökkviliðsmenn hafa gripið sig og komið sér í öruggt skjól nærri byggingu sem óttast var að myndi hrynja eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001.
Trump greindi frá þessu á viðburði við Hvíta húsið í gær, þar sem minnst var viðbragðsaðila sem létust í árásunum.
„Ég mun aldrei gleyma þessu,“ sagði Trump. „Við héldum að byggingin væri að fara að hrynja yfir okkur. Þá komu tveir slökkviliðsmenn, stórir og sterkir menn – og ég er nú ekki minnsti maður í heimi – gripu undir handleggina á mér og sögðu: ‚Við verðum að koma okkur héðan!‘“
Frásögnin er nýjasta útgáfan af sögu sem Trump hefur ítrekað sagt um aðkomu sína að björgunar- og hreinsunarstarfi í New York eftir árásirnar. Frásögn hans hefur tekið breytingum í gegnum tíðina og bandarískir fjölmiðlar hafa greint frá því að björgunarmenn og aðrir sem voru á vettvangi hafi dregið hluta hennar í efa. …