Google tæknifyrirtækið ætlar að fjárfesta fyrir meira en þrettán milljarða evra (hátt í tvö þúsund milljarða króna) í Finnlandi á næstu tveimur árum.
Fyrirtækið greindi frá þessu í morgun, en til stendur meðal annars að byggja upp gagnaver og innviði sem nota á fyrir starfsemi sem tengist gervigreind. Einnig stendur til að fjárfesta í orkuinnviðum og ýmis konar samstarfi við sveitarfélögin þar sem uppbyggingin á að eiga sér stað.
Í tilkynningu Google kemur fram að þessi fjárfesting sé sú stærsta sem fyrirtækið hafi ákveðið í Evrópu. Google hefur verið með starfsemi í Finnlandi undanfarin fimmtán ár.
„Ákvörðun Google er til marks um styrk okkar á þessu sviði,“ er haft eftir Petteri Orpo forsætisráðherra Finnlands í fréttatilkynningu Google, en finnsk stjórnvöld hafa leitast eftir fjárfestingum af þessu tagi að undanförnu.
Google segir að uppbygging þessa verkefnis muni styðja við um 37 þúsund störf í Finnlandi og um sjö þúsund störf eftir að framkvæmdum lýkur og reksturinn er kominn í gang.