Stjórnvöld í Íran segja her landsins hafa gert árásir á tíu skip nærri Hormússundi í dag, þar á meðal tvö bandarísk skip og átta olíuflutningaskip. Árásirnar eru svar við árásum Bandaríkjahers sem segist hafa sökkt fimm írönskum olíuflutningaskipum í nótt.
Ekki hafa verið gerðar eins viðamiklar árásir á skip frá því að stríð Bandaríkjanna í Íran hófst í febrúar. Í það minnsta einn sjómaður sem var um borð í olíuflutningaskipi var drepinn og eins til viðbótar er saknað.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp eftir árásirnar. Verðið á Brent-norðursjávarolíu fór yfir 100 Bandaríkjadali á tunnu í fyrsta sinn síðan í júlí.
Til viðbótar við árásirnar við Hormússund segja Íranar að þeir hafi ráðist á bandaríska herstöð í Jórdaníu með skotflaugum.
Þungi færist í árásir eftir mánaðarlanga kyrrð
Eftir um mánaðartímabil þar sem nær engar árásir voru gerðar hófu bæði ríki árásir að nýju undir lok ágúst.
Íranski byltingarvörðurinn hefur heitið því að svara nýjum árásum með enn harðari hætti en nú. Verði tvö eða þrjú skotmörk í Íran fyrir árás ætli Íransher að svara með árásum á 20 bandarísk skotmörk.
Stjórnstöð bandaríska hersins birti í nótt myndband á samfélagsmiðlinum X sem sýnir alelda skip sem síðan sekkur í hafið. Herinn segir árásirnar svar við tveimur flugskeytaárásum Írana á herskip bandaríska flotans á síðustu tveimur dögum. Enginn liðsmaður flotans særðist í árásunum.
Ný stefna bandarískra stjórnvalda
Stjórnvöld í Washington hafa kynnt nýja stefnu í árásum sínum sem felur í sér að herinn endurgeldur árásir Írana sem ógna herskipum með árásum á olíuflutningaskip.
„Íran heldur áfram tilraunum sínum til árása á herskip bandaríska flotans, í hvert skipti sem þeir gera það eða reyna það þá glata þeir olíuflutningaskipum,“ sagði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, við fjölmiðla í gær.
Á síðustu dögum hafa átök milli Húta í Jemen og Sádi-Araba færst í aukana sömuleiðis. Þau ógna einnig orkuframboði frá Mið-Austurlöndum og geta því haft talsverð áhrif á heimsmarkaðsverð olíu.