Húsið er á þremur hæðum með nýtanlegu risi sem er óskráð og sér bílastæði fylgja. Húsið var upphaflega byggt árið 1894 og stóð til ársins 1991 við Lindargötu. Það var síðan flutt á Bakkastíginn og gert upp að nánast öllu leiti það ár.
Húsið er einstaklega skemmtilega innréttað en þar er meðal annars að finna svart-hvítar gólfflísar, frístandandi baðkar og hangandi innirólu. Í garðinum er lítill kofi og skemmtilegt eldstæði.
Hér má finna nánari upplýsingar um eignina.