Guðmundur Fylkisson lögreglumaður hefur um árabil einbeitt sér að því að finna týnd börn og koma þeim í skjól og vakið athygli á málefnum barna með fjölþættan vanda. Í fyrra þurfti að leita fleiri barna en nokkru sinni og mikil og hávær umræða var um skort á úrræðum fyrir þennan hóp.
Guðmundur var valinn manneskja ársins 2025 að mati hlustenda Rásar 2, fréttastofu Sýnar og lesenda Smartlands. Hann segist hafa verið boðaður á fundi hjá stjórnvöldum af því tilefni.
„Það voru gefin vilyrði á gamlársdag en ég er ekki farinn að sjá neitt gerast. Hópurinn minn er sá sami. Hann er enn að strjúka úr þessum úrræðum sem eru í boði, sem eru enn þá opin. Börnin sem eru með fjölþættan vanda á erfiðasta staðnum, sem ríkið ætlaði að taka við, ég er ekki farinn að sjá að það sé neitt að gerast þar,“ sagði Guðmundur í þættinum Fram undan á Rás 2.
Hann segir að börnin séu ekki færri en á síðasta ári. „Þetta er 340-350 leitarbeiðnir á þessu ári og ég verð ekki var við að hlutirnir séu að lagast.“
Hann veltir fyrir sér hvað þurfi til að stjórnvöld bregðist við af fullum krafti.
„Bruninn á Stuðlum er 2024. Þar dó drengur. Það er komin skýrsla sem segir að ef allt hefði verið í lagi hefði Geir heitinn ekki dáið. Ári seinna kemur frétt um að sami staður sé keyrður áfram leyfislaus. Hlutirnir eiga að vera í lagi í kringum þessa krakka.“