Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

Mosfellsbær
Mynd: Mosfellsbær
Reykvíkingur á fertugsaldri hefur farið fram á að kona á þrítugsaldri verði borin út úr sumarbústað í Mosfellsbæ en greint er frá þessu í Lögbirtingablaðinu.
Héraðsdómi Reykjavíkur hefur borist krafa mannsins um að konan verði, ásamt eigum sínum og öðrum sem þar kunna að finnast, borin út úr sumarbústaðnum.
Nánari málsatvik og rökstuðningur fyrir kröfunni koma ekki fram í tilkynningu dómstólsins.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í desember. Konunni er gefinn kostur á að mæta og halda uppi vörnum. Geri hún það ekki kann úrskurður að verða kveðinn upp á grundvelli fyrirliggjandi gagna.