Ítalinn Enzo Maresca, verðandi knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City, vill fá Spánverjann Marc Cucurella til liðsins.
Enski miðillinn Caught Offside segir frá en Cucurella er leikmaður Chelsea.
Þeir störfuðu saman hjá Chelsea í eitt og hálft ár en Cucurella var algjör lykilmaður í Chelsea-liði Maresca.
Cucurella hefur spilað 163 leiki og skorað níu mörk síðan hann gekk í raðir Chelsea frá Brighton sumarið 2022. Þá á hann 23 landsleiki að baki fyrir Spán og varð Evrópumeistari 2024.