Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur gefið út nýjan vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi til leigjenda, en þar er meðal annars lagt til að greiðslur til húsnæðisbóta verði skertar um allt að 3 milljarða króna og að þeim fjármunum verði frekar varið til uppbyggingar íbúða fyrir tekjulægri heimili. Einnig er lagt til að á fót verði komið kaupleigukerfi fyrir leigjendur í almenna íbúðakerfinu með nýtingu hlutdeildarlána.
Vilja umbylta húsnæðisbótakerfinu til að styðja betur við leigjendur - Leggja fram fjórar tillögur