Fyrirtæki sem rekur fiskvinnslu í Reykjanesbæ hefur kært þá ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja að leggja á það dagsektir þar til starfseminni verði hætt en fiskvinnslan er í miðju íbúðahverfi. Íbúi í nágrenninu segir að lengi hafi verið kvartað yfir starfseminni og að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hafi greint nágrönnum fiskvinnslunnar frá því að hún hafi aldrei haft starfsleyfi.
Vilja stöðva starfsemi fiskvinnslu í Reykjanesbæ - Nágranni segir að lengi hafi verið kvartað