Við Íslendingar erum merkilega hugrakkir þegar engu á að breyta.Við bölvum verðbólgunni, okurvöxtunum, verðtryggingunni, bönkunum, fákeppninni, húsnæðisverðinu, kvótakerfinu og stjórnmálunum.Svo stingur einhver upp á breytingu.Þá verður allt heilagt.Krónan verður sjálfstæði þjóðarinnar. Kvótakerfið verður lífæð landsbyggðarinnar. Skuldsettur bóndi verður fæðuöryggi. Fákeppni verður óhjákvæmilegur fylgifiskur smæðarinnar. Og sérhagsmunir verða þjóðarhagsmunir áður en búið er að hella upp á kaffið.Þetta er eiginlega stórkostlegt fyrirkomulag.
Vilhelm Jónsson skrifar: Helvítis dallurinn má leka – bara ekki rugga honum