Leikarinn Hugh Laurie hefur beðist afsökunar á hörðum viðbrögðum sínum við gagnrýni breska blaðamannsins Janet Murray á vinsælu læknaþáttaröðinni House. Laurie lék lækninn Gregory House í þáttunum frá 2004 til 2012, þáttaraðirnar voru átta og þættirnir alls 177.
„Fyrirgefðu ef fólk hefur verið að gera grín að þér vegna tístsins míns,“ byrjaði Laurie færslu sína á mánudag og tók fram að það væri „alls ekki áætlunin“ í upphaflegu svari hans við gagnrýni Murray.
„Ég var mjög lítillega ölvaður og þegar orðinn æstur yfir öðru sem hafði ekkert með þig að gera,“ skrifaði Laurie. „Ef það er einhver huggun, þá fékk ég líka skammir.“
Laurie tók fram að hann væri að „verja handritshöfundana sem ég elskaði“ í fyrstu viðbrögðum sínum við gagnrýninni.
„Augljóslega hefði ég ekki átt að vitna í Bach/Kahlo/Moore, sem var hreinlega að biðja um vandræði, og hefði betur átt að velja 10.000 blúslög sem eru samin í kringum sömu 12 takta hljómauppbyggingu,“ sagði hann að lokum í færslunni. „Ég hef hlustað á flest þeirra og mun halda áfram að gera það. Vegna þess að við elskum það sem við elskum.“
Murray deildi tísti Laurie á eigin prófíl og skrifaði: „Söguþráðurinn óvæntur, en virðing.“
Afsökunarbeiðni Laurie kemur í kjölfar þess að Murray skrifaði grein um samskipti sín við Laurie fyrir stafræna miðilinn UnHerd undir yfirskriftinni „Það sem ég lærði af netdeilunni minni við Hugh Laurie.“
„Þó að þetta hafi allt verið frekar skemmtilegt, þá vona ég að Laurie gefi sér tíma til að lesa greinina mína (ég er viss um að hann getur keypt áskrift),“ skrifaði Murray í eigin færslu sinni á mánudaginn á X.
„Því þótt fyndið svar hans hafi verið sannarlega skemmtilegt, þá nefni ég eitt atriði í greininni, það er að henni var deilt með 1,2 milljón fylgjendum hans á X,“ skrifaði hún og benti á að hún hafi sjálf næstum 38.000 fylgjendur og að fjöldi fylgjenda hans hafi skapað „ójafnvægi“.
Murray svaraði síðar afsökunarbeiðni Laurie og skrifaði: „Takk fyrir. Að deila er sennilega vægt til orða tekið en ég þakka afsökunarbeiðnina og geri mér grein fyrir því að þú kannt að hafa verið að verja samstarfsmenn þína.“
Í gagnrýni Murray laugardaginn 6. júní skrifaði hún: „Ég er sein í partýið en ég er byrjuð að horfa á fyrstu þáttaröðina af House. Sama frásögnin í hverjum þætti: Sjúklingurinn er með dularfullan sjúkdóm. Hugh Laurie (House) fær ranga greiningu. Sjúklingurinn var næstum því að deyja.“
Hún hélt áfram: „Hugh Laurie fær ranga greiningu aftur. Hann fær hótanir um að vera rekinn. Sjúklingurinn var næstum því að deyja aftur. Hugh Laurie fær hugmynd á síðustu stundu. Greinir málið rétt. Hann er ekki rekinn. Átta þáttaraðir af þessu?“
Laurie svaraði upphaflega : „Takk fyrir gagnrýnina, Janet. Við reyndum reyndar nokkra þætti þar sem House (Hugh Laurie) (vinsamlegast settu svigana á réttan stað) gerir það rétt í fyrsta skipti, en þeir voru bara sex mínútur langir. NBC voru ekki ánægð. Svo reyndum við nokkra þar sem House gerir aldrei neitt rétt og sjúklingurinn deyr. Áhorfendurnir voru ekki ánægðir.“
Laurie hélt áfram„Það mætti heimfæra skarpskyggna greiningu þína á aðrar listgreinar: J.S. Bach samdi 30 Goldberg-tilbrigði við sömu hljómauppbyggingu; Frida Kahlo málaði 50 portrettmyndir af sjálfri sér; Henry Moore, hvað?? Málið er, eða var, tilbrigði við þema; ef þú sérð ekkert annað en sjúkrahús, læknisfræði bla bla, þá var þetta ekki ætlað þér. Engu að síður hlakka ég til fyrstu skáldsögu þinnar!“