„Það gekk allt mjög vel í byrjun,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, í samtali við blaðamann Vísis en bætir svo við að veturinn hafi einkennst af hrakföllum.
Fyrst hafi þurft að aflýsa ferðum um þjóðhátíðarhelgina í fyrrasumar, því næst hafi skipið farið í slipp í september „svo bilanir í desember, sem stoppaði okkur sem betur fer ekki, svo lokast höfnin í janúar,“ og upptalningin heldur áfram en nýjasti Þrándurinn í götu Ólafs og annarra í Eyjum er bilun í öðrum mótor skipsins.
„Það þarf að sérframleiða koparvír, sem tók lengri tíma en ætlað var, og ekkert hægt að vinna í mótornum á meðan,“ segir Ólafur en hann segir það „bagalegt“ að viðgerðinni seinki um þrjár vikur.
Skilji vel að staðan sé ekki ákjósanleg
Það sé mjög vont að skipið sé á öðrum mótornum alltaf og að það sigli hægar fyrir vikið.
„Við getum ekki siglt þessar átta ferðir, náum bara sjö sem er of lítil flutningsgeta,“ segir Ólafur. Hann segir muna gríðarlega miklu um að Baldur sé að sigla fyrir sunnan. Hann sýni því skilning að fólk sé ósátt við að Breiðafjarðarferjan Baldur sé hætt siglingum á Breiðafirði en ítrekar að staðan sé slæm.
„Auðvitað er sárt að eiga ekki fleiri tiltækar ferjur en Baldur er varaskip Herjólfs og við höfum ekki veg sem við getum keyrt,“ segir hann og ítrekar að það muni gríðarlega miklu um það að hafa Baldur með í siglingunni.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur haft orð á því að það hafi komið leiðinlega á óvart að vélarnar sem knýji Herjólf séu sérsmíðaðar og að það flæki fyrir þegar upp komi bilanir. Ólafur samsinnir því að þetta sé ekki til þess að bæta úr skák en að það sé almennt erfitt að nálgast varahluti enda séu þeir ekki hilluvara.
„Það er vont hvað það hefur tekið langan tíma að fá allt sem þarf til að laga þetta en almennt séð tekur langan tíma að fá varahluti,“ segir hann og bætir við að það sé „bagalegt að þurfa að bíða í níu mánuði eftir mótor“ og að „auðvitað tæki það örugglega styttri tíma ef vélin væri ekki sérsmíðuð“.
Sjá fyrir endann á hrakföllunum
Vírinn sé á leið frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er og að þetta sé unnið eins hratt og mögulegt sé.
„Þetta ætti að vera komið í lag um og eftir miðjan júlí og það var að sjálfsögðu ferlega fúlt að fá þessa seinkun, planið var að sigla á morgun og fara svo með hann í viðgerð. Við vissum að það yrði einhver seinkun en ekki svona mikil,“ segir hann.
Umferðin um helgina hafi verið gott dæmi um hvernig traffík myndast á sumrin. Það séu fram undan „þessar sömu gríðarlegu annir“ og að hann voni innilega að þessum hrakföllum fari að linna sem allra fyrst.
„Núna um helgina er fullt í langflestar ferðir, svo eru áfram íþróttahátíðir og goslokahátíð,“ segir hann en það voru af þeim tuttugu og fimm ferðum sem skipulagðar eru um helgina að minnsta kosti tuttugu fullbókaðar. Baldur sigli fimm ferðir á dag og Herjólfur sjö og að þrátt fyrir um helmingi minna bíldekk sé Baldur að dekka „þessa áttundu ferð“ sem skipulögð sé á sumrin.
Ólafur er á því að veturinn sé búinn að vera virkilega strembinn en það sjái loks fyrir endann á þessu. „Við vonum að þetta fari nú að verða búið, þetta er búið að vera alveg hræðilegt,“ segir hann.