Þar segir að búist sé við austan og suðaustan kalda og rigningu í dag. Þá verði strekkingur með suðurströndinni. Hægari vindur verði á Norður- og Austurlandi, og að muni rigna lítið sem ekkert fyrr en í kvöld.
„Lægðin fer austur yfir landið í nótt. Norðlæg eða breytileg átt á morgun, yfirleitt 3-10 m/s. Skýjað mestu og lítilsháttar væta, síðdegis rofar þó líklega til suðvestanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast suðaustantil,“ segir í spánni.
„Á þriðjudag verðum við á milli lægða og það léttir víða til, fyrst vestanlands. Á miðvikudag er næsta lægð væntanleg og þá er spáð allhvassri austanátt með talsverðri rigningu, einkum sunnan- og vestanlands.“