Yfir 20.000 gestir mættu á óvenjulegt borðhald í Búkarest í Rúmeníu í gær. Gestirnir sátu við borð sem var 5,055 metra langt og náði frá Unirii-breiðgötunni til þinghússins.
Markmiðið með uppákomunni var tvíþætt. Að slá eldra met í Heimsmetabók Guinness fyrir lengsta borð í heimi sem búið er til úr endurunnu efni og einnig að safna fjárframlögum fyrir geðdeild fyrir börn sem verður á Obregia-spítalanum í Búkarest.
Það tókst að slá heimsmetið, en fyrra met fyrir lengsta borð í heimi úr endurunnu efni var 2.782 metra langt og það heimsmet var sett í rúmensku borginni Alba Iulia á síðasta ári.
Mikil þörf fyrir geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn
Talið er að kostnaðurinn við uppbyggingu geðdeildarinnar nemi 16,5 milljónum evra og verður framkvæmdin fjármögnuð með einkaframlögum og kostun.
Samkvæmt AP-fréttaveitunni er mikil þörf á geðdeild fyrir börn því núverandi húsnæði er of lítið og nær ekki að anna eftirspurn og sinna þörfum barnanna sem þangað leita. Ráðgert er að nýja geðdeildin geti árlega þjónustað 5.700 börn sem glíma við alvarlega geðsjúkdóma.
Útgjöld til heilbrigðismála í Rúmeníu árið 2023 voru með því lægsta sem þekkist meðal landa í Evrópusambandinu sé miðað við verga landsframleiðslu.