Danska kvikmyndin Óþekkt kona (d. Kvinde ukendt) hlaut Gullna ljónið, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, sem veitt voru í gær. Aðalleikkona myndarinnar, Mathilde Arcel, fékk einnig Coppa Volpi verðlaunin fyrir besta leik í kvenhlutverki.
Myndin var eina kvikmyndin í fullri lengd í aðalkeppninni sem leikstýrð er af konu, May el-Toukhy. Óþekkt kona er dramatísk mynd og fjallar um danska konu sem reynir að fela ástarsamband sitt við nasista á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Kvikmyndin Possible Love í leikstjórn Lee Chang-dong fékk Silfurljónið á hátíðinni.
Heimildamyndin NAZA, eftir Óskarsverðlaunahafana og Ísraelana Yuval Abraham og Rachel Szor, fékk sérstök verðlaun dómnefndar á hátíðinni.
Myndin byggir á samtölum við 24 uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem lýsa því hvernig gervigreind var nýtt við árásir til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza. Mynd þeirra hefur vakið mikla athygli og uppskar 25 mínútna lófaklapp að lokinni frumsýningu á hátíðinni.
Verðlaun fyrir bestu leikstjórn voru veitt Ilya Khrzhanovsky, leikstjóra DAU. Þá fékk bandaríski leikarinn John Malkovich verðlaun sem besti karlkyns leikari fyrir hlutverk sitt í svörtu kómedíunni Wild Horse Nine.