Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar koma engar frekari upplýsingar fram um málið, nema að það hafi átt sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes.
Í sama umdæmi var ökumaður handtekinn fyrir að valda umferðaróhappi ölvaður.
Einstaklingur var handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt, eða fyrir „áflog og óspektir á almannafæri“, eins og það er orðað í dagbókinni. Það var í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sér um Kópavog og Breiðholt.
Svo handtók lögreglan þónokkra fyrir ölvunar-/fíkniefnaakstur víða um höfuðborgarsvæðið. Og sektaði aðra fyrir of hraðan akstur.