15 ára dreng var bjargað í Beringshafi úti fyrir ströndum St. Lawrence-eyju í síðustu viku eftir að hafa verið á reki á kili smábáts í tvo sólarhringa. Breska ríkisútvarpið greinir frá.
Derek Parker Aghnaanga fór ásamt eldri bróður sínum og frænda á bátnum frá St. Lawrence-eyju að morgni föstudagsins 4. september og ætluðu þeir að koma til baka tveimur dögum síðar. Þegar þeir skiluðu sér ekki fór af stað mikil leit.
Drengurinn fannst einn síns liðs á kili bátsins á mánudaginn, kaldur og hrakinn. Bátnum hafði hvolft daginn eftir að þeir fóru á haf út og bróðir hans og frændi drukknuðu. Aghnaanga hafði verið án matar og vatns í tvo sólarhringa þegar hann fannst.
Móðir drengsins, Vina Kulowiyi, sagði að bræðurnir og frændinn hefðu farið til veiða til að skaffa mat fyrir íbúa í Savonga á St. Lawrence-eyju. Um 800 búa í Savonga og flestir íbúanna tilheyra samfélagi Siberian Yupik-frumbyggja. St. Lawrence-eyja tilheyrir Alaska í Bandaríkjunum.