Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að í dag verði yfirleitt gola eða stinningsgola. Skúrir verði víða um land, einkum á Suður- og Vesturlandi. Í kvöld lægi og létti víða til. Hiti frá tíu stigum á norðvestantil upp að tuttugu stigum austanlands.
Í fyrramálið komi næsta lægð en hún muni fara norður yfir landið á morgun. Á morugn verði því suðaustan strekkingur en á vestanverðu landinu muni blása úr norðri. Úrkoma verði á öllu landinu, talsverð um tíma á Suðaustur- og Vesturlandi. Hiti verði á bilinu átta til fimmtán stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Rigning suðaustantil, en annars skýjað með köflum og dálitlar skúrir. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt og skúrir, einkum vestantil. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og dálítil rigning með köflum, en áfram milt veður.