Sergej Lavrov utanríkisráðherra Rússlands ávarpaði fund fulltrúa frjálsra félagasamtaka í dag og lét þessi ummæli falla.„Stríði hefur verið lýst á hendur okkur. Kænugarðsstjórnin er notuð sem spjótsoddur. En allir vita að þessi spjótsoddur er bjargarlaus án stuðnings Vesturlanda í formi vopna, upplýsinga, gervihnattakerfa, aðstoðar við herþjálfun og miklu meira. Kænugarðsstjórnina og úkraínska ríkið er verið að nota sem geópólitískan múrbrjót,“ sagði hann samkvæmt rússneska miðlinum Tass sem er í eigu rússneska ríkisins.Lavrov vísar svo til ummæla sem Frederic Vansina aðalhershöfðingi Belgíu lét falla um mikilvægi þess að Evrópa gæti staðið Rússlandi jafnfætis í hernaði án aðstoðar Bandaríkjanna árið 2030. Þau ummæli hafa rússnesk stjórnvöld túlkað sem átyllu fyrir hernaðaruppbyggingu vegna tilvonandi árásar.„Nokkrir bersöglir náungar, ég held að þeir hafi verið í herstjórn Belgíu, lýstu því opinberlega yfir að þeir stæðu í undirbúningi fyrir stríð við Rússland, að Úkraína veiti þeim bara frest. Eins og sagt er, er varla hægt að vera berorðari,“ sagði hann.
Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland - Vísir