Skoðun á ársreikningi Hafnarfjarðarbæjar hefur leitt í ljós verulegar áskoranir í rekstri bæjarins. Þetta kemur fram í bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar fyrr í síðustu viku.
Á síðasta ári hafi A-hluti bæjarins verið rekinn með 1.165 milljóna króna halla þótt áætlun hafi gert ráð fyrir 107 milljóna króna afgangi. Á fyrri helmingi þessa árs hafi hallinn verið enn meiri eða 2.360 milljónir króna, þegar gert hafi verið ráð fyrir 435 milljóna króna afgangi.
Stærsta frávikið í tekjum af byggingarréttargjöldum
Frávikið nemur um 2,8 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Stærsta frávikið er í tekjum af byggingarréttargjöldum, sem voru rúmum 1,5 milljörðum króna undir áætlun. Háir vextir, viðvarandi verðbólga og hægari uppbygging hafi einnig breytt forsendum fjárhagsáætlunarinnar verulega.
Þá hafi kostnaður líka farið fram úr áætlun meðal annars vegna vistgjalda, aðkeyptrar kennslu- og sérkennsluþjónustu og hærri launakostnaðar. Veltufé frá rekstri hafi aðeins verið fimmtíu og átta milljónir króna í lok júní sem sé 344 milljónum undir áætlun.
Þurfi að byggja á raunhæfum forsendum
Meirihlutinn segir stöðuna kalla á ábyrgð, aðhald og skýra forgangsröðun. Fjárhagsáætlun ársins 2027 þurfi að byggja á raunhæfum forsendum, ekki óvissum framtíðartekjum eða von um hraðar vaxtalækkanir.
Þegar hafi verið ráðist í stjórnsýslu- og fjármálaúttektir á rekstri bæjarins ásamt greiningarvinnu stjórnenda og starfsfólks bæjarins. Niðurstöður þeirrar vinnu muni liggja fyrir á næstunni og verða mikilvægt innlegg í ákvarðanir um nauðsynlegt aðhald, bætta nýtingu fjármuna og traustan rekstur til framtíðar.