„Byggingariðnaðurinn mun finna harkalega fyrir þessu,“ segir Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks um ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti upp í 8%. Hann giskar á að hækkunin hafi í för með sér að fyrirtæki hans greiði um 100 milljónir aukalega í vaxtagreiðslur á ári.
Þorvaldi þykir fullreynt að halda niðri þenslu með hækkun vaxta. „Ég tel fullreynt og algjörlega sýnt að vaxtastýringatækið virkar ekki sem skyldi til að halda niðri þenslu og einkaneyslu í peningakerfi sem er í verðtryggðu ástandi og þetta vaxtafyrirkomulag sem við búum við er einfaldlega of dýru verði keypt.“
Þess í stað þykir honum ríkið þurfa að draga saman rekstur og gjaldskrárhækkanir.
Viðvarandi vaxtaástand að verða verðbólguhvetjandi
Þorvaldi þykir vítahringur hafa orðið til þar sem fyrirtæki velta hækkandi vaxtagreiðslum yfir í verðlagið. „Sem mun aftur valda verðbólguþrýstingi. Mér sýnist við vera komin í þá stöðu að vaxtaákvarðanirnar núna og þetta viðvarandi vaxtaástand er að verða verðbólguhvetjandi.“
ÞG Verk hefur þurft að draga úr framleiðsluhraða á íbúðamarkaði. „Það er sölutregða á markaðnum og við höfum þurft að bregðast við því. Við höfum sömuleiðis þurft að fresta nýjum íbúðaverkefnum.“
Þorvaldur veltir því upp hvaða áhrif þetta geti haft til lengri tíma
„Hættan er sú að ef engin íbúðaverkefni fara í gang og íbúðaframleiðsla dregst mikið niður þá valdi það miklum vandamálum til lengri tíma.“
Þorvaldur varar við því að þegar eftirspurnin aukist að nýju verði framboðsskortur sem gæti haft ójafnvægi í efnahagslífinu í för með sér. „Og mögulega stjórnlausar hækkanir og við lendum í vítahringnum alveg upp á nýtt.“