Verkamannaflokkur forsætisráðherrans Roberts Abela tryggði sér sögulegan fjórða sigurinn í röð í þingkosningum sem haldnar voru á Möltu í gær. Flokkurinn fékk 52 prósent atkvæða gegn 45 prósentum helsta keppinautarins, Þjóðarflokksins.
Abela, sem hefur verið forsætisráðherra síðan 2020, boðaði til kosninga ári áður en kjörtímabilið rann út til að tryggja stjórninni nýtt umboð vegna vályndis í veraldarmálunum.
Þótt hagvöxtur hafi numið fjórum af hundraði á síðasta ári er óttast að samdráttur verði í ferðamennsku vegna hækkandi eldsneytisverðs af völdum stríðsins í Mið-Austurlöndum. Ferða- og fjármálaþjónusta eru helstu undirstöður efnahags þessa litla eyríkis í Miðjarðarhafi sem telur 550 þúsund íbúa.