Á dögunum fengum við fréttir af þjónustuvélmenni á hjúkrunarheimili í höfuðborginni. Það fer á milli borða í matsalnum og tekur leirtau af borðum. Hvernig fórum við frá því að láta lítil vélmenni ryksuga heimili okkar yfir í að láta þau taka af borðum?
Arnór Hreiðarsson, eigandi Gengils sem sér um rekstrarleigu á þjónustuvélmennum, var í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
„Ég er með tæki sem eru að skúra og sópa stór atvinnuhúsnæði á Íslandi og afköstin eru hundraðföld. Eitt svona tæki afkastar kannski að sópa og skúra hátt í 10.000 fm á dag og yfir margar hæðir. Vélmennið tekur lyftu á milli hæða og finnur sér verkefni“ segir hann.
Vélmennin leysi erfið verkefni sem séu tímafrek og erfið.